Sumarið hafið — fyrsta keppni 6. maí
Sumarrássinni var hleypt af stokkunum í blíðskaparveðri á þriðjudagskvöld. Fjórtán bátar mættu á rásmark úti við Engey og sigldu þrjár hringbrautir í 8–10 hnúta vestanátt.
Birta tók forystuna strax eftir fyrstu beygju og hélt henni alla leið í mark. Hrönn og Stormur börðust um annað sætið allan tímann og endaði Hrönn aðeins 12 sekúndum á undan á tíma.

Niðurstöður kvöldsins
| Sæti | Bátur | Skipper |
|---|---|---|
| 1 | Birta | Jón Sigurðsson |
| 2 | Hrönn | Anna Þórsdóttir |
| 3 | Stormur | Kristján Helgason |
Næsta keppni er á þriðjudaginn kemur, kl. 19:00 frá Brokey. Allar áhafnir velkomnar — hafðu samband ef þig vantar pláss í áhöfn.