Reykjavík Regatta
Vikuleg siglingakeppni kjölbáta á þriðjudagskvöldum úti fyrir strönd Reykjavíkur — opið öllum áhöfnum, allt sumarið.
Sjá stigatöflunaNæsta keppni
Brokey - Ingólfsgarði
þriðjudagur, 7. júlí
- Skipstjórafundur
- Fyrsta flaut
- Ræst
- Pylsuveisla
Siglt á breytilegri braut eftir vindi. Allar áhafnir velkomnar — hafðu samband ef þig vantar pláss í áhöfn.
Keppt er í tveimur flokkum, IRC flokki fyrir báta með virka IRC forgjöf og opnum flokki fyrir báta með SAGA forgjöf. Allir bátar fá úthlutað SAGA forgjöf, sem ólíkt IRC tekur tillit til fleira en hönnunar báts og seglabúnaðar. Ástand báts og áhafnar, reynsla og annað koma þar að til að gefa öllum tækifæri til að keppa á jafnfætisgrundvelli.
Skráning — stattu undir keppninni
Skráningargjald stendur undir kostnaði við keppnishaldið og pylsuveisluna sem fylgir í kjölfar hverrar siglingar. Skráðu þig fyrir allt sumarið eða eina keppni í einu.
Efstu lið
Heildarstigatafla →| # | Bátur | Skipper | Saga forgjöf | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Besta | Baldvin Björgvinsson | 0.935 | 8 |
| 2 | Dögun | Þórarinn Stefánsson | 0.833 | 18 |
| 3 | Sigurborg | Hannes Sveinbjörnsson | 0.917 | 19 |
| 4 | Sif | Ólafur Grétar | 0.935 | 21 |
| 5 | Sigurvon | Þórhallur Vignir Vilhjálmsson | 0.938 | 25 |
Hlekkir
Greiðsla fyrir keppnisstjórn
Til að fá greitt fyrir keppnisstjórn þarf að senda okkur reikning.
Greiðandi er:
Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey
Kt. 681174-0449
Ingólfsgarði, 101 Reykjavík
Taka þarf fram fyrir hvaða dag(a) keppnisstjórnin er og að sjálfsögðu hvert við eigum að senda aurinn.
Greiddar eru 20 þúsund krónur fyrir hvert kvöld.
Reikningurinn sendist á hello@reykjavikregatta.is og við látum greiða hann um hæl.