NAVOA - Nýr samstarfsaðili Reykjavík Regatta

NAVOA er nýtt app sem rekur staðsetningu skemmtibáta, deilir henni með þínum nánustu og getur jafnframt sent neyðarkall til Landhelgisgæslunnar (og nákominna) ef eitthvað fer verulega úrskeiðis.

Við hvetjum alla til að sækja sér appið á NAVOA.is - en það er til bæði fyrir iPhone og Android - og nota í Reykjavik Regatta, svo hægt sé að fylgjast með keppnunum á netinu.

Til gamans má geta þess að að baki NAVOA stendur m.a. Reynir Smári, konungur kjölbátadeildar Brokeyjar, en það hafði engin áhrif á ákvörðunina um samstarfið.

← Til baka í fréttir