Start flautin

Þegar keppnisstjóri ræsir keppni þá eru sett upp flögg - sem eru hin raunverulegu merki - og flautar í lúður til áherslu.

Appelsínugulur fáni sýnir hvar startlínan er. Hann er settur upp 10 mínútum fyrr.

  1. Fimm mínutur í ræsingu: Brokeyjarfáni settur upp og flautað.
  2. Fjórar mínútur í ræsingu: P fáni settur upp (blár kassi) og flautað.
  3. Ein mínúta í ræsingu: P fáni tekinn niður og flautað.
  4. Ræsing: Brokeyjarfáni tekinn niður og flautað.

Blár fáni er settur upp við markið þegar keppni er hafin, nema ætlunin sé að sigla í gegnum markið sem hluta af brautinni. Þá er blái fáninn settur upp þegar síðasti bátur hefur farið í gegn á leið sinni.

Nema annað sé tekið fram er keppnisstjóri við staurinn rétt innan við Brokeyjarkofana á Ingólfsgarði þar sem festingar eru fyrir fánana.

Það er oft handagangur í öskjunni á síðustu mínútunni fyrir ræsingu þegar keppnisáhafnir eru að reyna að koma sér í þá stöðu að siglt sé yfir start línu akkúrat þegar flautað er. Óreyndar áhafnir geta lært mikið af því að fylgjast gaumgæfilega með hvernig fólk hagar sér og seglum sínum, beitir stjórnborðsreglunni óspart en leitast líka við að finna frían vind.

← Til baka í fréttir